28apríl

Ţađ fór sem fór

Átti alveg hreint æðislegan afmælisdag. Súpupartý í hádeginu, svo smá kökupartý klukkan þrjú og síðan út að borða sem endaði svo í leikhúsi að sjá Pétur Gautur. Alveg æðislegt semsagt..

Ég get ekki skilið fólk sem kemur hér á sportbar að spila pool og biður mann um að spila Trans tónlist. Ég horfi á þetta fólk með mikilli vanþóknun og segi síðan ,, því miður við bara EIGUM ekki svona unglingatónlist, hér spilum við nær EINGÖNGU rokk, með smá jazzi inn á milli." þá horfa steraboltarnir(það eru yfirleitt þeir sem biðja um trans) á mig með mjög sljóum augum og biðja mig þá um að setja Bubba á fóninn. Já Bubbi er nefnilega næstur á lista á eftir Trans tónlist. Fuss og Svei!!!!
28. apríl 2006 klukkan 02:34
Ásta Margrét Elínardóttir
2 athugasemdir
25apríl

AĐEINS...

...TVEIR DAGAR!!!
25. apríl 2006 klukkan 01:46
Ásta Margrét Elínardóttir
3 athugasemdir
21apríl

Föstudagsröfl...

En og aftur sit ég hér á barnum að eiga svokallaðar gáfulegar samræður. Gaman af þeim. Stundum ganga þær þó aðeins of djúpt eins og núna eru þeir farnir að ræða um hugarástand raðmorðingja. Svoldið skemmtilegt að fá að taka þátt í svona samræðum. 

Hinn helmingurinn minn verður 23 ára á morgun. Það er hún Elín Þórdís Meldal. Elsku krúttið mitt til hamingju með þennan dag. 
 

Svo nálgast afmælið mitt sem er á miðvikudaginn næsta. Mikið hlakka ég til. Ég elska afmæli. Og þá sérstaklega mitt.
21. apríl 2006 klukkan 19:50
Ásta Margrét Elínardóttir
Engin athugasemd
15apríl

Nenn'ekki, vil'ekki, get'ekki...

Stundum lendir maður í skemmtilegum umræðum á barnum í vinnunni. Þar eru rædd trúmál (án alls ofbeldis samt), fjölskyldumál, sveitina og skipulagsmál borgarinnar. Stundum hef ég meira að segja eitthvað voðalega málefnalegt fram að leggja. Þá hugsa ég með mér ,,Vá, afhverju skrifa ég ekki svona gáfulega á blogginu mínu. Best að muna þetta og setja það inn næst." svo sit ég hér fyrir framan tölvuna og bara púff ég nenni ekki að sounda svona gáfulega á netinu. Fólk gæti misst eitthvað af þessu mikla "áliti" sem það hefur á mér. Þannig ég hef bara ákveðið að sleppa því algjörlega í þetta sinn allaveganna.

P.S. Já Jónas, snoðhaus.
15. apríl 2006 klukkan 02:29
Ásta Margrét Elínardóttir
3 athugasemdir
13apríl

Eitthvađ meira nýtt..

Fór og verslaði fullt í IKEA í gær. Keypti flotta hillu í stofuna og svo fullt af smá drasli. Geðveikt heimilislegt eitthvað heima hjá mér. Rosalega hlakkar mér til að kaupa mér rúm... Mmmmmhhhh... Þokkalega í næsta mánuði!!

Annað hef ég frá að segja að hárið mitt er farið! Og sumarið komiðSvalur
13. apríl 2006 klukkan 02:49
Ásta Margrét Elínardóttir
2 athugasemdir
11apríl

Eyđslupúki!!

Ég er farinn að eyða pening trallalalala!!!!!
11. apríl 2006 klukkan 19:24
Ásta Margrét Elínardóttir
1 athugasemd
10apríl

Ţá heldur mađur áfram.

Ég er að verða brjáluð útaf öllu þessu net veseni. Ekkert gengur að koma símanum upp heima hjá mér. Og svo er netið ekkert að standa sig hér í vinnunni heldur. En ætli ég muni ekki redda því á næstunni sjálf. Það er eitthvað Vodafone bull hérna núna, held ég fari bara í síman og láti þá redda þessu fyrir mig. Meanwhile neyðist ég til að hanga á Hressó og misnota netið hjá ömmukaffi. Þar sem að Hressó netið virkar ekki. Bull bull bull. 

Var að klára fyrsta skrifstofudaginn minn í dag. Svaka gaman. Vona bara að ég hafi gert allt rétt, ætti ekki að hafa getað klúðrað neinu þar sem að fólk var alveg einstaklega hjálpsamt.
10. apríl 2006 klukkan 21:48
Ásta Margrét Elínardóttir
1 athugasemd
07apríl

Hér er ég kominn.

Jæja eins og alltaf ef breyta á um einn hlut þá er bara fínt að breyta um þá alla. Sælt kæra fólk og velkomið á nýju síðuna mína. Like it?

Ég er núna búin að koma mér vel fyrir í miðbæjar kastalanum mínum sem ég er byrjuð að leigja. Alveg huges íbúð með mikið og gott pláss fyrir mig og kisurnar mínar. Og já Eyjó.

En fyrst ég flutti nú niðrí bæ þá þáði ég nú að sjálfsögðu stöðuhækkunina frá honum Bóba mínum og er nú orðin rekstrarstjóri Sportbarsins. Merkismanneskjan ég!

En jæja batteríið búið svo ég skila kveðju að sinni.
07. apríl 2006 klukkan 21:08
Ásta Margrét Elínardóttir
3 athugasemdir
04apríl

Testing

Alltaf gaman að skoða hvort að það sé eitthvað nýtt og betra til.
04. apríl 2006 klukkan 20:16
Ásta Margrét Elínardóttir
Engin athugasemd

Ađalvalmynd

Tímateljarinn!!

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Ásta Margrét Elínardóttir
  • Stađur: Hafnarfjörđur
  • Atvinna: Háskólanemi
  • Hjúskaparstađa: Mamman, pabbinn og barniđ.
  • Um mig: Enginn er fullkominn en ÉG er nokkuđ nálćgt ţví...

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur