10september

Ég sat í tíma í gær þegar svo spennandi umræðuefni spratt upp að ég byrjaði að skjálfa og fá hraðan hjartslátt en allur spenningurinn olli því að ég kom ekki upp einu orði en náði því mun betur að hlusta á hvað aðrir höfðu um málefnið að segja. Ég verð greinilega að æfa mig í innri íhugun til að ná smá ró á líkamann svo ég nái að tjá mig við samnemendur!!! Ooohhhh hvað ég elska námið mitt!!

http://www.sbac.edu/~tpl/clipart/Education/I%20love%20school.jpg
10. september 2008 klukkan 19:44
Ásta Margrét Elínardóttir
7 athugasemdir
06september




Emí að kassast í flutningunum.
06. september 2008 klukkan 01:37
Ásta Margrét Elínardóttir
7 athugasemdir
05september

Þá er útlegðin búin og netsamband komið á!! Flutningarnir gengu vel og erum við eiginlega bara alveg búin að koma okkur fyrir. Emí líkar vel og okkur líka ;-) Þvílíkt og annað eins notalegt að búa ekki undir leigusalanum og að ég tala nú ekki um að vera ekki ofan í kjallara.

Skólinn er byrjaður og er bara í alla staði GEÐVEIKT skemmtilegur!! Er alveg að njóta mín í botn þarna og er því greinilega kominn á rétta hillu.

Við mættum í dag að sýna ljósmæðrum samstöðu og segi ég bara SKAMM SKAMM SKAMM þið öll sem mættuð ekki. Hver tók á móti ykkur og ykkar nánustu, eru þið tilbúin í ljósmóðurlausa framtíð?? Svei attan!!!

Hver ætlar að vera fyrstur í heimsókn???
05. september 2008 klukkan 20:01
Ásta Margrét Elínardóttir
Engin athugasemd
29ágúst

Ég mætti gallvösk upp í háskólan í dag klukkan 13:00 til að fara á nýnemakynningu hugvísindadeildar. En það var sem ég hélt en neitaði að trúa með öllu tilgangslaust og bara drepleiðinlegt.

Klukkan 14:00 mætti ég svo á nýnemakynningu hjá guðfræðideild og var það aðeins skemmtilegra en samt með öllu tilgangslaust.

Klukkan 15:00 var svo öll guðfræðideildin saman kominn til að hefja nýja önn og þá byrjaði ballið því ég komst að því að það er á alls engan hátt er litið góðlegum augum til vantrú.is og ég hreinlega gapti á meðan deildarstjóri (eða hvað þetta kallast) tilkynni um ríginn (hann sagði næstum því stríðið)  sem væri þeirra (vantrú og kristinna) á milli en myndi nú eflaust fara þeim (kristnum) í hag fljótlega.

Ég heyrði ekki mikið meira af kynningunni því ég datt bara inn í spennandi hugsanir um komandi rökræður og skemmtanir hjá mér í vetur. Því þó ég sé ekki út í eitt sátt við vantrú.is þá hafa þeir nú staðið mér nær heldur en kristninn.

Það verður stuð að komast að því hvort fleiri trúarbragðalausir séu í námi með mér í vetur til að hita þetta aðeins meira upp.

29. ágúst 2008 klukkan 17:11
Ásta Margrét Elínardóttir
10 athugasemdir
27ágúst

Ég er að drukkna úr kössum svo að söfnuninn hefur greinilega gengið með eindæmum vel! Núna þarf ég bara að klára að troða draslinu mínu ofan í þá og MOVING DAY á sunnudaginn!

Ég fór og tékkaði á skólastöðunni í dag og fékk endanlega stundaskrá. Hún er ekki jafn fullkominn og guðfræðinemarnir fá en hún er samt helvíti góð miðað við sumar sem maður heyrir um.
27. ágúst 2008 klukkan 16:23
Ásta Margrét Elínardóttir
Engin athugasemd
24ágúst

Við leystum þraut í háskólanum á laugardaginn og fengum knús á laugarveginum.

Í dag fengum við að kíkja í 7 ára afmæli og skoða fullt af Hello Kitty dóti.

Spurning hvað morgundagurinn dregur með sér.

24. ágúst 2008 klukkan 20:36
Ásta Margrét Elínardóttir
Engin athugasemd
22ágúst

Afhverju finnst mér ég svona afskiptlaus?? Skyldi það vera vegna þess að Helga er ekki búin að spila neitt scrabbulous við mig í dag? Það má vera....

22. ágúst 2008 klukkan 22:29
Ásta Margrét Elínardóttir
4 athugasemdir
21ágúst

Við komum okkur vel fyrir í bílnum áðan og ætluðum að bruna burtu en nei. Litli brumm brumm bara steindauður!!! Hvurn a*s*o*a* hef ég að gera við bíl sem virkar ekki.

URR!!!!!!!!!
21. ágúst 2008 klukkan 14:18
Ásta Margrét Elínardóttir
Engin athugasemd
20ágúst

Loksins loksins loksins er ég búin að ná í hana Ásdísi yfirhöfuð guðfræðideildar HÍ. Hún var mjög svo vinsamleg og lofaði mér því að ég þyrfi ekki að fara í guðfræði í haust (góða góða konan) hún bauð mér að kíkja á sig í næstu viku og koma skólamálunum á hreint svo ég geti farið að skipuleggja skólaárið.

Nú er bara spurning hvort að almenn trúarbragðafræði hafi jafn yndislega flotta stundartöflu og guðfræðin hefur!

(P.S. ég er greinilega að fara í skóla þar sem að bloggfærslum virðist hafa fjölgað til muna.)

20. ágúst 2008 klukkan 11:35
Ásta Margrét Elínardóttir
2 athugasemdir
19ágúst

Hér var allt fullt af næstum því eins árs börnum í dag!
Og rosalega voru sum þeirra STÓR.
Við Emí skemmtum okkur svo vel að við þurftum að leggja okkur í tvo tíma eftir skrallið.

19. ágúst 2008 klukkan 22:30
Ásta Margrét Elínardóttir
Engin athugasemd

Ađalvalmynd

Tímateljarinn!!

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Ásta Margrét Elínardóttir
  • Stađur: Hafnarfjörđur
  • Atvinna: Háskólanemi
  • Hjúskaparstađa: Mamman, pabbinn og barniđ.
  • Um mig: Enginn er fullkominn en ÉG er nokkuđ nálćgt ţví...

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur